Tónlistarmiðstöð orðin að veruleika

Stofnfundur Tónlistarmiðstöðvar fór fram í Hörpu þann 15. ágúst. Þar var fyrsta stjórn miðstöðvarinnar kynnt, en hana skipa Einar Bárðarson (formaður), Sólrún Sumarliðadóttir, Ásmundur Jónsson, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Gunnar Hrafnsson, Páll Ragnar Pálsson og Sigrún Grendal.

Jakob Frímann Magnússon, sem fór fyrir starfshópi er annaðist undirbúning að stofnuninni, ávarpaði fundinn. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tók einnig til máls og mælti m.a. svo:

„Þetta er mikill gleðidagur og einstaklega mikilvægur áfangi fyrir tónlist og tónlistarfólk hér á landi. Þetta er löngu tímabært skref sem mun styrkja tónlistargeirann til framtíðar. Tónlistarmiðstöðin getur orðið einn af hornsteinum tónlistarlífs og -iðnaðar og það er mín von og trú að tónlistarsenan hér á landi muni blómstra sem aldrei fyrr.“

Um hlutverk Tónlistarmiðstöðvar segir svo á vef ráðuneytisins:

Tónlistarmiðstöð er stofnuð með það að markmiði að verða einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs og -iðnaðar. Á árunum 2023-2025 er ráðgert að samtals 600 milljónir renni af fjárlögum til stofnunar Tónlistarmiðstöðvar og til eflingar sjóða tónlistar til viðbótar við þau framlög sem renna nú þegar til tónlistar. Tónlistarmiðstöð á að:

    • vera sam­starfs­vett­vang­ur at­vinnu­lífs, hags­muna­sam­taka, menn­ing­ar­stofn­ana, mennta­stofn­ana og stjórn­valda um stefnu og aðgerðir í mál­efn­um tón­list­ar.
    • hafa um­sjón með rekstri og starf­semi tón­list­ar­sjóðs.
    • stuðla að kynn­ingu, út­breiðslu og sölu á ís­lenskri tónlist og nót­um og starf­rækja nótna­veitu fyr­ir ís­lensk tón­verk.
    • veita tón­listar­fólki og fyr­ir­tækj­um sem markaðssetja tónlist ráðgjöf og þjón­ustu, styðja út­flutn­ing á tónlist og stuðla að aukn­um sam­skipt­um og tengslamynd­un við er­lenda aðila á sviði tón­list­ar.
    • sinna af­mörkuðum verk­efn­um tengd­um rann­sókn­um og töl­fræði um ís­lensk­an tón­list­ariðnað.
    • styðja varðveislu menn­ing­ar­arf­leifðar á sviði tón­list­ar með ráðgjöf, fræðslu og þjón­ustu.

Á meðfylgjandi mynd gefur að líta stjórnarfólk og ráðherra.

Scroll to Top