Kvikmyndir & tónlist

Tónlist í kvikmyndum

Kvikmyndahúsum sem sýna kvikmyndir gegn aðgangseyri ber að afla leyfis hjá STEFi fyrir opinberum flutningi á tónlist sem hljómar í viðkomandi myndum. Ástæðan er sú, að tónhöfundar framselja sjaldnast réttinn til opinbers flutnings tónlistar sinnar til kvikmyndaframleiðenda. Á það bæði við um frumsamda tónlist fyrir kvikmyndina (e. score) og áður útgefna tónlist.

Það sama gildir fyrir leiksýningar eða aðrar sambærilegar sýningar þar sem tónlist er flutt (sjá nánari upplýsingar um tónlist í leikhúsum undir hlekknum „sviðsverk“).

Samkvæmt verðskrá STEFs greiða kvikmyndahús 1% af aðgangseyri að kvikmyndasýningum, að frádregnum virðisaukaskatti. Innifalið í gjaldinu er sú tónlist sem leikin er fyrir og eftir sýningar sem og í hléi. Algengast er að innheimt sé ársfjórðungslega, en hægt er að semja um önnur uppgjörstímabil.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu STEFs til að gera samning um flutning tónlistar í kvikmyndasýningum eða leiksýningum í gegnum netfangið sala@stef.is.

Scroll to Top